Hverjir eru félagar í Al-Anon fjölskyldudeildunum og af hverju eru þeir það?

 Al-Anon félagar eru allskyns fólk úr öllum stéttum, trúfélögum og kynþáttum; eiginkonur, eiginmenn, ástvinir, systur, bræður, börn og foreldrar alkóhólista. Engu skiptir hvernig sambandi okkar við alkóhólistann var eða er. Það sem skiptir máli er að við erum tengd ákveðnum böndum; við erum fullviss þess að líf okkar hefur orðið fyrir áhrifum af drykkju annarra. Við hittumst til þess að deila reynslu okkar, styrk og von.

Eru Al-Anon samtökin trúarlegs eðlis?

Al-Anon er andleg samtök, ekki trúarleg. Trúlausir jafnt sem trúaðir eru velkomnir og við leggjum áherslu á að ræða ekki sértæk umræðuefni trúarlegs eðlis. Al-Anon leiðin er byggð á þeirri andlegu hugmynd að við getum treyst á mátt okkur æðri, okkur til hjálpar við lausn vandamála og til að tryggja okkur hugarró. Við höfum algert frelsi til þess að skilgreina í hverju þessu máttur felst og með okkar eigin orðum.


Bjóða Al-Anon samtökin upp á ráðgjafa eða meðferð?

Al-Anon og Alateen deildirnar eru sjálfshjálparleið þar sem gagnkvæmur stuðningur félaga er í boði og úrval lesefnis sem styrkir félaga í leit sinni að betri líðan.


Mælir Al-Anon með ákveðnum meðferðarúrræðum?

Við erum ekki fagfólk og mælum því ekki með neinum tegunda hjálpar utan Al-Anon leiðarinnar. Með því að deila okkar eigin reynslu og styrk geta félagar öðlast innsýn sem gagnast þeim í því að fást við eigin kringumstæður.


Hvernig veit ég hvort Al-Anon aðferðin hentar mér?

Hér er spurningalisti sem getur hjálpað þér að glöggva þig á því hvort þú eigir erindi á Al-Anon fundi.


Verður sagt frá því að ég hafi komið á fundinn?

Nafnleyndin er algert grundvallaratriði í Al-Anon bataleiðinni. Hún tryggir félögum öruggan stað til þess að deila reynslu sinni. Við notum eingöngu fornöfn eða gælunöfn félaga. Við ræðum ekki um fólkið sem við sjáum eða endurtökum það sem við heyrum. Við stöndum vörð um nafnleynd allra Al-Anon, Alateen,  AA-félaga jafnt sem fjölskyldumeðlima og vina sem við gætum minnst á fundum.

Hver er ábyrgur fyrir deildinni ?

Við öll. Við veljum félaga í þjónustuhlutverk í deildinni, allt frá þremur upp í tvö ár í senn. Ein bataleiðanna er að þjóna í Al-Anon fjölskyldudeildunum t.d. félagar bjóðast til að leiða fundi, undirbúa fundi, raða upp lesefni og sinna öðrum þörfum deildarinnar. Reyndir félagar leiða t.d. fundi á stofnunum, nýliðafundi, sporafundi og gerast trúnaðarmenn. Einnig taka þeir þátt í starfi á landsvísu.

Eru aðrar deildir eins og þessi?

Deildin okkar er ein þúsunda Al-Anon deilda í meira en 110 löndum víðs vegar um heim. Á Íslandi fylgja flestar deildir sama fundarfyrirkomulagi og Al-Anon deildir í öðrum löndum. Áherslumunur getur verið milli deilda og sumar deildir eru t.d. karla eða konudeildir. Einnig eru sumar deildir með fast fundaefni en aðrar frjálst. Deildirnar skiptast síðan í þrjú svæði á landsvísu. Á svæðisfundum ræða fulltrúar deildanna þau mál sem varða vöxt deilanna og sameinast um sameiginleg markmið. Svæðisfundir eru opnir öllum félögum sem áhuga hafa á því að gefa af sér til samtakanna eða til að fræðast meira um samtökin.

Hvað kostar þetta allt?

Engra beinna félagsgjalda er krafist af félögum Al-Anon eða Alateen deildanna. Í flestum deildum eru körfur látnar ganga á fundum. Við setjum í þær frjálst framlag, það sem við getum látið af hendi rakna. Peningarnir eru notaðir til að greiða húsaleigu, kaupa samþykkt Al-Anon lesefni fyrir deildina, kaupa veitingar og fl. Það sem af gengur er nýtt í sameiginlegan rekstur allra deildanna á þjónustuskrifstofu samtakanna, útgáfu á lesefni á íslensku, til kynninga og reksturs þessarar vefsíðu.

Hvað geri ég nú?

Okkur hefur fundist gagnlegt að:
  • Verða okkur út um fundarskrá
  • Mæta reglulega á fundi og spjalla við hvort annað fyrir og eftir fundi.
  • Skiptast á símanúmerum og netföngum.
  • Að nokkrum tíma liðnum langar þig e.t.v. að biðja einhvern reyndan félaga að vera trúnaðarmanninn þinn. Trúnaðarmenn eru til staðar fyrir þig á milli funda. Trúnaðarmaðurinn þinn er þinn sérstaki vinur, sem þú getur haldið áfram að ræða við um innstu tilfinningar þínar og líðan, í fullum trúnaði.
  • Lesa Al-Anon og Alateen bækur, bæklinga, tímaritið Forum, veftímaritið Hlekkinn og ýmis erlend fréttabréf Al-Anon og Alateen.
 

Ef þú hefur enn spurningar, vertu óhrædd/ur að spyrja.  Komdu endilega á fund. Við bjóðum þér vináttu okkar og skilning. Í byrjun er mjög gott að fara á nýliðafundi ef boðið er upp á þá í þínu byggðarlagi.

 

Þessi texti er byggður m.a. á bæklingnum S-4  For The Newcomer, P24/27 Service Manual og reynslu íslenskra félaga
Birt með góðfúslegu leyfi Al-Anon Inc.©

Öll réttindi áskilin. Þessa vefsíðu má ekki afrita með neinum hætti, vista inn í kerfi þar sem unnt er að sækja hann eða senda áfram, á nokkru formi eða með nokkurri aðferð (rafrænni, vélrænni, með ljósritun, upptöku eða á annan hátt), án þess að geta heimilda www.al-anon.is.

Al-Anon samtökin á Íslandi©

Al-Anon félögum er frjálst að prenta út og dreifa efninu innan samtakanna og til félaga.