Nýliðafundir eru sex vikur í senn sem má byrja á að mæta á hvenær sem er. Þú þarft ekki að tilkynna þig, bara að mæta. Það kostar ekki neitt en frjáls framlög eru vel þeginn.

Þetta eru smærri fundir þar sem skýrt er frá starfsemi Al-Anon fjölskyldudeildanna, reyndir félagar segja reynslusögu sína og frá því hvernig Al-Anon og Alateen aðferðin hefur gagnast þeim. Aðrar deildir sem eru ekki með sérstaka nýliðafundi bjóða nýliðum upp á að ræða við valda félaga eftir almennan fund. Nýliðafundir eru að jafnaði 30-45 mínútur  að lengd og eru hjá mörgum deildum á undan almennum fundi.
 
Við mælum eindregið með því að þú mætir einnig í allavega sex skipti á almenna fundi áður en þú gerir upp hug þinn um hvort þessi sjálfshjálparaðferð hentar þér. Í fyrstu getur verið mjög erfitt að takast á við hluti sem legið hafa í þagnargildi jafnvel áratugum saman. En ástandið er ekki vonlaust. Þúsundir fólks um allan heim hafa öðlast hjálp og aukna hugarró með því að sækja Al-Anon fundi og að lesa Al-Anon lesefni.

 

N Ý L I Ð A F U N D I R

 landshluti:

staðsetning:

tími:

 

m á n u d a g u r

 Ísafjörður

AA-húsið, Eyrargötu 5

19:30

 

 

þ r i ð j u d a g u r

 

 

 Reykjavík

Héðinsgata 1-3

18:30

Karladeild

 Reykjavík

Safnaðarheimili Árbæjarkirkju (að neðan) við Rofabæ

20:00

 

 Vestmannaeyjar

Heimagata 24

20:00

 

 

m i ð v i k u d a g u r

 

 

 Reykjavík

Héðinsgata 1-3

20:00