Nokkur heillaráð til fjölskyldu og vina alkóhólista sem hafa farið í meðferð

 
Alkóhólisti sem leggur áfengi á hilluna og vinnur að bata, á fyrir höndum langa og oft erfiða batagöngu. Sá tími getur reynst honum og aðstandendum hans erfiður. Ekki reikna með skjótum eða algjörum bata hvorki hjá alkóhólistanum né heldur fjölskyldunni.  Þróun alkóhólismans hefur varað lengi, batinn er líka lengi að komast á skrið. Hjá alkóhólistanum getur orðið vart við þurrafyllerí, einskonar taugaspennu, sem á ekkert skylt við raunverulegt fyllerí.
  • Reyndu að sýna þolinmæði. Þér finnst kannski þurrafylleríin jafnvel verri en alvöru fyllerí, en þau eru það í rauninni ekki. Þolinmæði og umburðarlyndi munu fleyta þér í gegnum þessi erfiðu tímabil. Vera má að alkóhólistinn finni til yfirþyrmandi þreytu í eitt ár eða lengur eftir að drykkju er hætt. Þessi þreyta getur verið ein af mörgum einkennum fráhvarfseinkenna.
  • Ekki reyna að knýja fram úrlausnir.  Notaðu tímann til að byggja þig upp og vinna að eigin bata í Al-Anon.
  • Gættu þess að ofvernda ekki alkóhólistann. Alkóhólistinn verður að átta sig á því að hann lifir í þjóðfélagi þar sem áfengi er veitt og hann verður að læra að taka ábyrgð á sjálfum sér.
  • Varastu gremju og afbrýðisemi í garð þeirra meðferðarúrræða sem alkóhólistinn velur. Margir alkóhólistar þarfnast daglegra AA funda. Mundu að fundirnir gegna lækningahlutverki. Reyndu að finna til þakklætis yfir því að alkóhólistinn vilji vera í meðferð, jafnvel þó að það komi niður á samveru ykkar og kalli á fjarveru að heiman. Þegar alkóhólistinn er allsgáður, gefst tími til ýmissa áhugamála að AA fundum meðtöldum.
  • Reyndu að vera hvetjandi. Með því að losa sig við gamla drykkjufélaga og drykkjusiði gefst tími til annarra áhugamála. 
  • Leyfðu þér að beina athyglinni frá alkóhólistanum að áhugaverðum málefnum í Al-Anon og hlúa að eigin bata um leið. Þið hafið þá lagt á nýja lífsbraut saman, hvert á sinn hátt.  Þið kunnið að hrasa eða falla á brautinni en látið það ekki á ykkur fá. Þið getið verið róleg í trausti þess að góður grunnur hefur verið lagður að batanum. Ef ykkur finnst að ykkur hafi orðið á skulu þið læra af mistökunum og gleyma þeim síðan. 
  • Láttu vonbrigði og uppgjöf heyra fortíðinni til og horfðu fram á veginn!
  • Framtíðin verður ekki alltaf auðveld en getur boðið þér og ástvini þínum nýtt og innihaldsríkt líf. Bati af afleiðingum alkóhólisma er mögulegur.
 

 

 

Byggt á P-14 Elskarðu alkóhólista, B-22 How Al-Anon Works, P-8 Homeward Bound
 reynslu, styrk og vonum íslenskra Al-Anon félaga 

  Birt með fóðfúslegu leyfi Al-Anon Inc.©