Öll þjónusta (12. spor) er jafn mikilvæg.
Ef samtökin eru sterkt og heilbrigt batasamfélag þá skapast grundvöllur fyrir góðum bata félaganna. Allir félagar geta stuðlað að sterkum og trúverðugum samtökum með því að flytja öðrum þennan boðskap og taka þátt í tólfta spors starfi. Hér að neðan koma koma nokkrar tillögur sem sem sýna fram á fjölbreytni tólfta spors starfs.
Í deildinni:
- sjá um kaffi, tiltekt, stafla stólum, skúra gólf, bóksala o.fl.
- borga í pottinn (frjáls framlög, þakklætisvottur fyrir tilvist samtakanna )
- mæta og taka þátt í samviskufundum deildarinnar,
- vera trúnaðarmaður
- vera þjónustutrúnaðarmaður (leiða annan í gegnum þjónustuhlutverk sem þú kannt)
- tjá sig á fundum,
- leiða fundi, finna leiðara
- sýna nýliðum athygli og tala við þá
- taka að sér hlutverk í deildinni t.d.(ritari, gjaldkeri, bókafulltrúi, deildarfulltrúi),
- bjóða símanúmerið sitt, fylgja nýliðum á fyrstu fundi
- auglýsa deildina sína vel í nærliggjandi búðum, sundlauginn og heilsugæslunni
- fara með kynningar á heilsugæslur, í skóla o.fl.
- leiða nýliðafundi, sporafundi og erfðavenjufundi
- kynna samþykkt lesefni og nota það til að leiða fundi
Á svæðinu:
- mæta á svæðisfundi og taka þátt í samvisku svæðisins,
- aðstoða við svæðisfund (kaffi, tiltekt, auglýsa, bóksala o.fl.),
- deildin þín hýsir svæðisfund
- taka að sér hlutverk á svæðinu (svæðisfulltrúi, gjaldkeri, ritari o.fl.)
- tjá sig á fundum, svara neyðarsíma,
- taka þátt í SOS-hóp, aðstoða við kynningarstarf (t.d. VOG, fangelsi o.fl.),
- vera Alateen-trúnaðarmaður
- ræða um samtökin við aðra þar sem við á (aðlöðun fremur en áróður)
- taka aðra deild í fóstur t.d. nýja deild eða deild sem er orðin fámenn
Á landsvísu:
- starfa í nefnd t.d.almannatengslanefnd, útgáfunefnd, Alateen nefnd, ráðstefnunefnd
- þjónusta á ráðstefnu,
- vera á tólfta spors lista skrifstofunnar (svara tólfta spors bréfum, símtölum og vera trúnaðarmanneskja fyrir fólk úti á landi þar sem ekki eru fundir)
- skrifa reynslusögu á Hlekkinn
- og fleira....