Ykkar reynsla gulli betri
Ágætu Al-Anon félagar!
Við höfum öll sögu að segja. Það styrkir batasamfélag okkar að heyra aðra deila reynslu sinni, styrk og von.
Á þessa síðu vantar íslenskar reynslusögur um sporin og sporavinnuna. Deilið bata ykkar með öðrum. Nánari upplýsingar má finna á Hlekknum undir > Efni óskast frá félögum.
Einn dagur í einu í Al-Anon
Fyrsta sporið
3. maí
Í fimmtán látlausum orðum fyrsta sporsins felst mikil lífsspeki. Hægt væri að skrifa margar bækur um þá uppgjöf sem fyrstu sex orðin leggja til: ,,Við viðurkenndum vanmátt okkar gegn áfengi.” Næstu níu orðin tákna viðurkenningu okkar á því að við höfum ekki enn lært að fást skynsamlega við okkar mál: ,,...okkur var orðið um megn að stjórna eigin lífi.” Fyrsta sporið býr okkur undir nýtt líf sem við getum því aðeins öðlast að við sleppum tökunum á því sem við getum ekki stjórnað. Að við tökumst á hendur, einn dag í einu, hið geysistóra verkefni að koma reglu á líf okkar með breyttum hugsunarhætti.
Einn dagur í einu í Al-Anon
Þriðja sporið
3. febrúar
Þegar ég segist ætla að fela guði allan minn vanda þýðir það ekki að ég geti skotið mér undan ábyrgð. Mér hafa verið gefnir sérstakir eiginleikar til að stjórna lífi mínu og frjáls vilji til að beita þeim. Þessir eiginleikar eru dómgreind, skynsemi, góður ásetningur og hæfileiki til að draga ályktanir. Ef til vill stafar vandi minn af því að ég hef misnotað þessa eiginleika. Dómgreindin getur hafa brenglast af reiði og skynsemin af því ég hef ekki skoðað vandamálin af fullri hreinskilni. Góður ásetningur getur farið forgörðum ef við getum ekki umborið bresti annarra. Hæfileikinn til að álykta getur sljóvgast þegar okkur mistekst að skilja okkur frá tilfinningalegri hlið vandamálsins.
Einn dagur í einu í Al-Anon
Fjórða sporið
22. október
Þegar ég hef sökkt mér niður í Al-Anon hugmyndafræðina í leit minni að hugarró finnst mér ég þurfa að skilja mínar innstu hvatir og ástæður fyrir gerðum mínum og bæta úr því sem stendur mér fyrir þrifum.
Leitin að sjálfsskilningi er nokkuð sem er erfitt, ef ekki ómögulegt að ljúka til fulls. En við getum lært mikið um okkur sjálf ef við höfum þann kjark sem þarf til að horfast í augu við okkar eigin raunverulega tilgang, án sjálfsblekkingar. Við getum það, ef við látum ekki óþægilega sektarkennd dylja þá góðu eiginleika sem við verðum að þekkja og byggja á í framtíðinni.
Einn dagur einu í Al-Anon
Ellefta sporið
17. október
Sporin tólf eru safn andlegrar visku sem víkkar og eykur skilning okkar þegar við meðtökum þau eitt af öðru. Það er þó eitt spor sem varpar sérstöku ljósi á öll hin og við ættum því, allt frá upphafi, að hugleiða það á hverjum degi. Þetta er ellefta sporið sem fjallar um bæn og hugleiðslu.
Hugleiðsla er hin hljóðláta og staðfasta beiting hugans til djúprar íhugunar, andlegra sanninda. Tilgangur hennar er að sveigja hugann frá þeim vandamálum sem við blasa, lyfta huga okkar yfir þau umkvörtunarefni og þá óánægju sem mengar hugsunina.
Úr Einn dagur í einu í Al-Anon
Tólfta sporið
26. júní
Í tólfta sporinu er kynnt síðasta áhrifaríka andlega leiðin sem okkur getur hlotnast ef við lifum samkvæmt lífsmáta Al-Anon. ,,Við fundum að sá árangur sem náðist, með hjálp reynslusporanna, var andleg vakning og þess vegna reyndum við að flytja öðrum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lífi okkar og starfi.”
Hin andlega vakning færir okkur vitneskju um að við séum ekki ein og hjálparvana; við höfum numið vissan sannleik, sem við getum nú flutt öðrum þeim til hjálpar.
Paths to Recovery (Leiðir til bata)
KRAFTAVERK
Ellefta sporið
ELLEFTA SPORIÐ er afar sérstakt spor. Ég kunni vel að meta það um leið og ég heyrði það fyrst. Áður en ég kom inn í Al-Anon hafði ég fengið áhuga á austrænum trúarbrögðum. Mér geðjaðist að hugmyndinni um hugleiðslu. En þó virtust allar tilraunir mínar til að hugleiða mistakast. Ég gat ekki haldið kyrrð í huganum í meira en hálfa mínútu. Þar sem mér tókst það ekki í fyrstu tilraun taldi ég mig vonlausa og gafst upp.