Frá aðalþjónustunefnd

Ákall til Al-Anon félaga og deilda!

Þitt framlag skiptir máli!

Ákall Al-Anon á Íslandi

 

TIL SAMVISKU DEILDA

OG ALLRA AL-ANON FÉLAGA

 

Árlega eru Al-Anon deildirnar á Íslandi beðnar um að styrkja sameiginlegt starf samtakanna með fjárframlögum.  
 
Sameiginlega starfið er margþætt. T.d. er rekin upplýsinga- og þjónustuskrifstofa að Grandagarði 14, sími 551 9282. Margvíslegur kostnaður fylgir því að halda úti skrifstofu, leiga, sími og net, laun starfsmanns og fleira. 
Þaðan er stýrt margvíslegri kynningar-, þýðingar-, og útgáfustarfsemi.
Hornsteinn og grunnur að einingu, vexti og þjónustu Al-Anon á Íslandi á undanförnum árum hefur verið  lesefni á íslensku, aðgengilegt fyrir sem flestar fjölskyldur og vini alkóhólista.
 
Útgáfa og þýðingarstörf hafa verið kostnaðarsöm á undanförnum misserum og því er leitað bæði til deilda og einstaklinga um fjárframlög í anda 7. erfðavenjunnar. Óskað er eftir að þetta ákall berist sem flestum Al-Anon félögum og sé rætt á samviskufundum deilda á Íslandi og þeir minntir á bankareikning Al-Anon.   

Bréf til félaga frá almannatengslanefnd

Leyfðu öðrum að frétta af Al-Anon

,,Gleymdu" Al-Anon bæklingum og einblöðungum á almannafæri

Bréf til deilda um alþjóðlegan gleymskudag.
Vinsamlega lesið upp í deildum eins oft og þurfa þykir,
að lágmarki tvisvar sinnum fyrir 4. mars:

 

Kæru deildir og félagar!

 

AL-Anon samtökin voru formlega stofnuð í maí 1951 í New York af Lois sem var  eiginkona Bill annars stofnanda AA-samtakanna og Anne B. Vill almannatengslanefnd Al-Anon á Íslandi vekja athygli á því að Lois hefði orðið 118 ára þann 4.  mars n.k.

Af því tilefni verður haldinn alþjóðlegur ,,gleymskudagur” hjá Al-Anon samtökunum á heimsvísu.

 

Gleymskudagur er  að amerískri fyrirmynd þar sem Al-Anon félagar ,,gleyma” samþykktum bæklingum og lesefni á helstu opinberu stöðum í hverfi deildarinnar, s.s. eigin vinnustað, sundlaugum, hárgreiðslustofum, líkamsræktarstöðvum, skólum, sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum, strætó, inn í bókum sem verið er að skila á bókasafnið o.fl. 

Bréf til deilda frá aðalþjónustunefnd

...Megi það byrja hjá mér...

7. erfðavenjan

 

Kæru Al-Anon félagar.                                                           Janúar 2009

 

Árlega eru Al-Anon deildirnar á Íslandi beðnar um að styrkja sameiginlegt starf samtakanna með fjárframlögum. 

 

Sameiginlega starfið er margþætt en það helsta er:

 

  • að reka upplýsinga- og þjónustuskrifstofu að Grandagarði 14
  • að halda úti netsíðunni www.al-anon.is
  • að vera með kynninga- og almannatengslastarf
  • að sjá um þýðingar- og útgáfustarfsemi á lesefni Al-Anon á Íslandi
  • að sinna samskiptum við Al-Anon á heimsvísu

  

Ein mikilvæg leið til að styrkja starfið er með fjárframlögum.  Í anda 7. erfðavenjunnar hafna Al-Anon samtökin öllum utanaðkomandi fjárframlögum.

 

Al-Anon hjálpar félögum sínum að bera ábyrgð á sjálfum sér, að vera heiðarlegir og finna sinn innri styrk.  Sjöunda erfðavenjan bendir á hversu þýðingarmikið það er fyrir hverja deild að þróa með sér þessa eiginleika.