Bréf til deilda frá aðalþjónustunefnd

...Megi það byrja hjá mér...

7. erfðavenjan

 

Kæru Al-Anon félagar.                                                           Janúar 2009

 

Árlega eru Al-Anon deildirnar á Íslandi beðnar um að styrkja sameiginlegt starf samtakanna með fjárframlögum. 

 

Sameiginlega starfið er margþætt en það helsta er:

 

  • að reka upplýsinga- og þjónustuskrifstofu að Grandagarði 14
  • að halda úti netsíðunni www.al-anon.is
  • að vera með kynninga- og almannatengslastarf
  • að sjá um þýðingar- og útgáfustarfsemi á lesefni Al-Anon á Íslandi
  • að sinna samskiptum við Al-Anon á heimsvísu

  

Ein mikilvæg leið til að styrkja starfið er með fjárframlögum.  Í anda 7. erfðavenjunnar hafna Al-Anon samtökin öllum utanaðkomandi fjárframlögum.

 

Al-Anon hjálpar félögum sínum að bera ábyrgð á sjálfum sér, að vera heiðarlegir og finna sinn innri styrk.  Sjöunda erfðavenjan bendir á hversu þýðingarmikið það er fyrir hverja deild að þróa með sér þessa eiginleika.

Við sýnum þakklæti okkar til Al-Anon fjölskyldudeildanna í verki með framlögum í þakklætispottinn og tryggjum þannig að deildin og samtökin séu til staðar fyrir alla aðstandendur sem þurfa á bataleiðinni að halda.

 

Með bréfinu þessu fylgir óútfylltur gíróseðill fyrir framlag deildarinnar til aðalþjónustuskrifstofu Al-Anon samtakanna á Íslandi.  Félögum er bent á að sjálfsögðu er alltaf hægt að leggja ykkar persónulegu framlög beint inn á reikninginn nr.0101-26-021674 eða á  reikning til styrktar þýðingum og útgáfu lesefnis nr. 0101-05-267926 , kt. 680978-0429.

 

Með kærri Al-Anon kveðju,

aðalþjónustunefndin.

 

YFIRLÝSING AL-ANON:

Megi það byrja hjá mér!

Þegar einhver,

einhvers staðar leitar eftir hjálp

megi hönd Al-Anon og Alateen ávallt vera til staðar,

 og -  megi það byrja hjá mér.