Bréf til félaga frá almannatengslanefnd

Leyfðu öðrum að frétta af Al-Anon

,,Gleymdu" Al-Anon bæklingum og einblöðungum á almannafæri

Bréf til deilda um alþjóðlegan gleymskudag.
Vinsamlega lesið upp í deildum eins oft og þurfa þykir,
að lágmarki tvisvar sinnum fyrir 4. mars:

 

Kæru deildir og félagar!

 

AL-Anon samtökin voru formlega stofnuð í maí 1951 í New York af Lois sem var  eiginkona Bill annars stofnanda AA-samtakanna og Anne B. Vill almannatengslanefnd Al-Anon á Íslandi vekja athygli á því að Lois hefði orðið 118 ára þann 4.  mars n.k.

Af því tilefni verður haldinn alþjóðlegur ,,gleymskudagur” hjá Al-Anon samtökunum á heimsvísu.

 

Gleymskudagur er  að amerískri fyrirmynd þar sem Al-Anon félagar ,,gleyma” samþykktum bæklingum og lesefni á helstu opinberu stöðum í hverfi deildarinnar, s.s. eigin vinnustað, sundlaugum, hárgreiðslustofum, líkamsræktarstöðvum, skólum, sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum, strætó, inn í bókum sem verið er að skila á bókasafnið o.fl. 

 

Félagar gætu keypt bæklinga eða lesefni og ,,gleymt” hér og þar eða nýtt eldra efni í það.  Mælst er til þess að deildir hafi bæklinga til reiðu fyrir félaga.

 

Eftirfarandi bæklingar henta vel til ,,gleymsku”:

-         Að aftengjast – að sleppa tökunum

-         Ólst þú upp við drykkjuvandamál?

-         Hefur þú áhyggjur af drykkju einhvers?

-         Tilgangur & tillögur

-         Staðreyndir um Alateen

-         Elskarðu alkóhólista?

-         Sjónarhorn Al-Anon

-         Dagurinn í dag

-         Fundaskrár

-         Þetta er Al-Anon

Al-Anon skrifstofan er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 10-13, Grandagarði 14, 3. hæð.  Þar er hægt að nálgast lesefni og frekari upplýsingar. 

Hægt er að senda pantanir á skrifstofuna í tölvupósti al-anon@al-anon.is og fá sent í póstkröfu.

 

Kær kveðja frá félögunum í almannatengslanefnd