Þjónustuhugtökin eru til leiðbeiningar um hvernig Al-Anon fjölskyldudeildirnar starfa í heild sem samtök. Þau eru lýðræðislegur grunnur þar sem er gætt jafnræðis á milli Al-Anon deilda. |
|
Þjónustuhugtökin tólf |
1. Endanleg ábyrgð og forræði alþjóðaþjónustu Al-Anon er í höndum Al-Anon deilda. |
2. Al-Anon fjölskyldudeildirnar hafa falið ráðstefnu og þjónustugeira hennar fullt stjórnunar- og framkvæmdavald. |
3. Rétturinn til ákvarðana er forsenda áhrifamikillar forystu. |
4. Þátttaka er lykillinn að jafnvægi. |
5. Áfrýjunar- og bænarskrárrétturinn verndar minnihlutann og tryggir að álit hans heyrist. |
6. Ráðstefnan viðurkennir að stjórnunarleg ábyrgð sé fyrst og fremst í höndum fulltrúa stjórnarnefndarinnar. |
7. Réttur fulltrúa stjórnarnefndarinnar ákvarðast af lögum en réttur ráðstefnunnar er byggður á erfðavenjum. |
8. Stjórnarnefnd felur framkvæmdanefnd fullt vald yfir daglegum rekstri Alþjóðaþjónustuskrifstofu Al-Anon. |
9. Góð forysta er nauðsynleg á öllum stigum þjónustunnar. Í alþjóðaþjónustu tekur stjórnarnefndin að sér aðalforystu. |
10. Ábyrgð þjónustunnar er tryggt jafnvægi með því að afmarka valdsvið hennar nákvæmlega og þannig er komið í veg fyrir tvöfalda stjórnun. |
11. Alþjóðaþjónustuskrifstofan (WSO) samanstendur af fastanefndum, framkvæmdastjórn og starfsfólki. |
12. Andlegur grundvöllur alþjóðaþjónustu Al-Anon er fólginn í almennum ábyrgðaryfirlýsingum ráðstefnunnar, 12. grein stofnskrárinnar. |
|
|
|
|
|
Almennar ábyrgðaryfirlýsingar |
Í allri framkvæmd mun Alþjóðaþjónusturáðstefna Al-Anon starfa í anda erfðavenjanna og gæta þess: |
- að meginreglan í fjármálum sé sú að ávallt sé tiltækt nægjanlegt rekstrarfé, auk varasjóðs. |
- að enginn landsþjónustufulltrúi sé settur í stöðu sem gefi honum ótakmarkað vald yfir öðrum félögum. |
- að allar ákvarðanir séu teknar að undangengnum umræðum, atkvæðagreiðslu og séu ,þegar því er viðkomið, einróma. |
- að engri ákvörðun ráðstefnu sé beint sem refsingu gegn einstaklingum eða stuðli að deilum á opinberum vettvangi. |
- að ráðstefnan gegni ekki stjórnunarhlutverki, heldur sé hún eins og samtökin, sem hún þjónar, lýðræðisleg í starfi og anda. |
|
|