ER ALATEEN FYRIR ÞIG?
Alateen er fyrir unglinga sem hafa orðið fyrir áhrifum af drykkju annarra.
Eftirfarandi tuttugu spurningar eru til að hjálpa þér að ákveða hvort Alateen gæti hjálpað þér
-
Kemur drykkja foreldris, náins vinar eða ættingja þér úr jafnvægi?
-
Leynir þú raunverulegum tilfinningum þínum með því að láta sem þér standi á sama?
-
Finnst þér að drykkjan eyðileggi alla frídaga?
-
Lýgur þú til að fela drykkju einhvers eða halda leyndu því sem gerist heima hjá þér?
-
Ert þú eins mikið að heiman og mögulegt er af því að þér líður illa þar?
-
Hræðist þú að koma einhverjum í uppnám af ótta við að þá gæti hann/hún ,,dottið í það"?
-
Finnst þér eins og engum þyki í raun og veru vænt um þig eða hirði um hvað um þig verður?
-
Hræðist þú eða finnst þér vandræðalegt að taka vini með þér heim?
-
Telur þú hegðun þess sem drekkur vera þér að kenna, öðrum í fjölskyldunni, vinum eða vegna óheppni í lífinu?
-
Ert þú með hótanir eins og: ,,Ef þú hættir ekki að drekka, slást o.s.fr. fer ég að heiman”?
-
Gefur þú loforð eins og: ,,Ég skal standa mig betur í skólanum, fara í kirkju eða taka til í herberginu mínu,” gegn loforði um að drykkjan og slagsmálin hætti?
-
Finnst þér að ef mamma þín eða pabbi elskuðu þig myndi hún eða hann hætta að drekka?
-
Hótar þú einhvern tíma að skaða þig eða gerir jafnvel alvöru úr því til að foreldrar, systkini eða vinir þínir verði hræddir og segi: ,,Fyrirgefðu” eða ,,Mér þykir vænt um þig”?
-
Finnst þér óhugsandi að nokkur geti skilið hvernig þér líður?
-
Átt þú í peningavandræðum vegna drykkju einhvers?
-
Frestast matmálstímar oft vegna drykkjunnar?
-
Hefur þér dottið í hug að kalla á lögreglu vegna drykkjuláta?
-
Hefur þú neitað að hitta aðra vegna hræðslu eða kvíða?
-
Heldur þú að öll önnur vandamál leysist ef drykkjan hættir?
-
Veldur gremja þín vegna drykkju annarra því að þú sýnir öðrum ósanngirni (kennara, skólafélaga, liðsfélaga o.s.fr.)?
Ef þú hefur svarað einhverjum þessara spurninga játandi gæti Alateen hjálpað þér. Við hvetjum þig til að skoða reynslusögurnar á ,,Spurt og svarað" á þessari síðu.
Byggt á S-20, Er Alateen fyrir þig? Birt með gófúslegur leyfi Al-Anon Inc.
Öll réttindi áskilin. Þessa vefsíðu má ekki afrita með neinum hætti, vista inn í kerfi þar sem unnt er að sækja hann eða senda áfram, á nokkru formi eða með nokkurri aðferð (rafrænni, vélrænni, með ljósritun, upptöku eða á annan hátt), án þess að geta heimilda www.al-anon.is.
Al-Anon samtökin á Íslandi©
Al-Anon og Alateen félögum er frjálst að prenta út og dreifa efninu innan samtakanna og til félaga.