Living Today in Alateen
Alateen breytti því hvernig ég lifi og hvernig ég hugsa
3. febrúar
Í dag er ég þakklát fyrir Alateen. Áður en ég fór að sækja fundi, var ég mjög feimin og hrædd við fólk. Ég velti fyrir mér hvað þeim myndi finnast um mig ef ég talaði við þau og segði þeim hvernig mér liði. Ég reyndi að vera alveg eins og allir aðrir en það mistókst. Ég var niðurdregin og einmana og sá alltaf lífið í ömurlegu ljósi.
Living Today in Alateen
Ég ræð hvernig ég bregst við
6. janúar
Áður varð ég oft mjög reið/ur við vini mína. Ef einhver sagði eitthvað sem mér mislíkaði þá var ég með fýlusvip við hann eða hana allan þann dag. Ég sagði engum yfir hverju ég hafði reiðst og enginn vissi fyrir víst við hvern ég reiddist.
Living Today in Alateen
Ég ræð hver minn æðri máttur er
21. janúar
Í þriðja sporinu segir: að fela vilja sinn og líf sitt í umsjá guðs eins og við skiljum hann. Ég átti í mestu vandræðum með þetta, þar sem ég hafði engan guð!
Ég talaði um þetta við trúnaðarmann minn og hann sagði mér að búa mér til eitthvað sem ég gæti skilið og halda mig við það, svo ég fór eftir því. Ég kallaði hann ekki guð eða neitt þannig. Ég lét hann heita Jóa.
Living Today in Alateen
Félagar í Alateen ræða um æðri mátt:
16. janúar
- Áður hugsaði ég mér guð eins og álfadís. Hann uppfyllti óskir, gerði suma hamingjusama og sinnti öðrum ekki. Núna veit ég að það er ekki þannig. Hann er alltaf tilbúinn að hlusta á bænir mínar og svör hans eru já, nei, eða bíddu. Með því að læra að treysta og æfa mig í þolinmæði, veit ég að hann mun gera það sem er best fyrir mig í dag.
Living Today in Alateen
Tilfinning um frið og ró
? dagur
Eitt af því sem ég tók með mér heim af Alateen fundunum var friður.
Tilfinningin um að allt verði í lagi þrátt fyrir að hlutirnir gerist ekki
einmitt í dag. Deildin mín leystist upp og ég tapaði þessari tilfinngu
um frið og æðruleysi um tíma.
Living Today in Alateen
Vanmáttur
7. janúar
Í fyrsta sporinu viðurkenndum við að við vorum vanmáttug gagnvart áfengi. Í dag vinn ég þetta spor með því að setja ,,vanmáttug gagnvart fólki og aðstæðum“ í staðinn fyrir ,,vanmáttug gagnvart áfengi“. Áður fannst mér ég geta stjórnað öllum -alkóhólistanum og öllum öðrum. Ég hélt að ég