4. mars 2010 19:19

Gleymskudagurinn verður 19. mars í ár

Frá Almannatengslanefnd

Kæru deildir og félagar!

 

Í ár verður gleymskudagurinn haldinn þann 19.mars n.k.

 

Gleymskudagur er amerísk fyrirmynd þar sem Al-Anon félagar “gleyma” samþykktum bæklingum og lesefni á helstu opinberu stöðum í hverfi deildarinnar, s.s. eigin vinnustað, sundlaugum, hárgreiðslustofum, líkamsræktarstöðvum, skólum, sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum, strætó, inn í bókum sem verið er að skila á bókasafnið o.fl. 

 

Félagar gætu keypt bæklinga eða lesefni og “gleymt” hér og þar eða nýtt eldra efni í það.  Mælst er til þess að deildir hafi bæklinga til reiðu fyrir félaga.

 

Eftirfarandi bæklingar henta vel til “gleymsku”:

-      Að aftengjast – að sleppa tökunum

-      Ólst þú upp við drykkjuvandamál?

-      Hefur þú áhyggjur af drykkju einhvers?

-      Tilgangur & tillögur

-      Staðreyndir um Alateen

-      Elskarðu alkóhólista?

-      Sjónarhorn Al-Anon

-      Dagurinn í dag

-      Fundaskrár

-      Þetta er Al-Anon

 

Al-Anon skrifstofan er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 10-13, Grandagarði 14, 3. hæð.  Þar er hægt að nálgast lesefni og frekari upplýsingar. 

Hægt er að senda pantanir á skrifstofuna í tölvupósti al-anon@al-anon.is og fá sent í póstkröfu.

 

Kær kveðja frá félögunum í almannatengslanefnd